Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 414/2020 - Úrskurður

.

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 414/2020

Fimmtudaginn 19. nóvember 2020

 

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 27. ágúst 2020, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 23. júní 2020, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 28. mars 2020. Meðfylgjandi umsókn kæranda var vottorð frá fyrrverandi vinnuveitanda þar sem fram kemur að kærandi hafi sjálf sagt starfi sínu lausu. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 6. maí 2020, var óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda á ástæðum uppsagnar hennar. Skýringar bárust ekki. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 23. júní 2020, var kæranda tilkynnt að umsókn hennar um atvinnuleysisbætur hefði verið samþykkt en með vísan til starfsloka hennar hjá síðasta vinnuveitanda væri réttur til atvinnuleysisbóta hins vegar felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Með erindi 28. maí 2020 sendi kærandi Vinnumálastofnun skýringar vegna uppsagnar. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 9. júlí 2020, var kæranda tilkynnt að fyrri ákvörðun í máli hennar væri staðfest.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 27. ágúst 2020. Með bréfi, dags. 31. ágúst 2020, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 13. október 2020, og með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 19. október 2020, var greinargerðin send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar greinir kærandi frá því að hún hafi sagt upp vinnu sinni vegna eineltis á vinnustaðnum. Hún hafi verið atvinnulaus og þar með tekjulaus í tvo mánuði.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir. Í greinargerð með frumvarpi því, sem hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar, sé það áréttað að eitt af markmiðum vinnumarkaðskerfisins sé að stuðla að virkri atvinnuþátttöku fólks. Með hliðsjón af því sé ekki gefinn kostur á að fólk segi upp starfi sínu til að fá greiddar atvinnuleysisbætur án þess að sérstakar ástæður liggi að baki uppsögninni í tilvikum þegar annað starf sé ekki í boði. Í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. í greinargerðinni sé vísað til þess að það væri erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega í lögum og reglugerðum hvaða ástæður, sem liggi að baki ákvörðun þess að fólk segi störfum sínum lausum, séu gildar þar sem þær ástæður geti verið af margvíslegum toga. Því hafi verið lagt til að lagareglan væri matskennd og Vinnumálastofnun falið að meta atvik og aðstæður hverju sinni. Orðalagið „gildar ástæður“ hafi verið túlkað þröngt og fá tilvik verið talin falla þar undir. Stofnuninni beri því að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir á því hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Vinnumálastofnun vísar til þess að tilgangur laga nr. 54/2006 sé að tryggja þeim, sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt, tímabundna fjárhagsaðstoð í þrengingum sínum. Lögin veiti þeim fjárhagslegt úrræði og beri að gera ríkar kröfur til þeirra sem segi upp störfum sínum að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi. Það sama gildi um þann sem missi starf sitt af ástæðum sem hann eigi sjálfur sök á. Óumdeilt sé að kærandi hafi sagt starfi sínu lausu. Í skýringum til Vinnumálastofnunar séu tilgreindar ástæður þess að kærandi hafi sagt starfi sínu lausu, meðal annars kynþáttafordómar, einelti, skortur á faglegri stjórnun og leiðtogahæfni yfirmanna. Ágreiningur málsins snúist um það hvort ástæður kæranda fyrir því að segja starfi sínu lausu teljist gildar í skilningi 54. gr. laga nr. 54/2006.

Orðalagið „gildar ástæður“ hafi verið túlkað þröngt og fá tilvik hafi verið talin falla þar undir. Vinnumálastofnun telji að í þeim tilvikum sem óánægja starfsmanns með vinnuumhverfi sitt sé ástæða starfsloka þurfi sá er hlut eigi að máli að minnsta kosti að hafa gert tilraunir til úrbóta með aðkomu yfirmanns á vinnustað, stéttarfélags síns og eftir atvikum Vinnueftirlitsins áður en hann taki ákvörðun um að segja starfi sínu lausu. Af gögnum málsins megi ekki sjá að kærandi hafi leitað allra leiða til lausnar á þeim vanda sem upp hafi komið á milli hennar og yfirmanna. Vinnumálastofnun telji því að ástæður þær er kærandi gefi fyrir uppsögn sinni teljist ekki gildar í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006. Í máli kæranda liggi ekki fyrir neinar upplýsingar um að tilraunir til úrbóta hafi verið fullreyndar áður en kærandi hafi sagt starfi sínu lausu, hvorki er snúi að atvinnurekanda, viðeigandi stéttarfélagi né Vinnueftirliti. Líkt og áður hafi komið fram verði stofnunin að gera ríkar kröfur til þeirra er segja starfi sínu lausu án þess að hafa annað starf í hendi. Í ljósi framangreinds sé það mat Vinnumálastofnunar að ástæður þær er kærandi gefi fyrir uppsögn sinni teljist ekki gildar í skilningi 1. mgr. 54. gr. laganna og að hún skuli sæta biðtíma á grundvelli ákvæðisins. Með vísan til framangreindra sjónarmiða sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að greiðslur atvinnuleysisbóta skuli fyrst hefjast þegar kærandi hafi verið skráður hjá Vinnumálastofnun án bóta í tvo mánuði.

IV.  Niðurstaða

Ágreiningur máls þessa lýtur að ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Ákvæði 1. mgr. 54. gr. laganna er svohljóðandi:

„Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir um þann sem missir starf af ástæðum sem hann á sjálfur sök á.“

Óumdeilt er að kærandi sagði upp starfi sínu hjá tilteknu fyrirtæki en ágreiningur málsins lýtur að því hvort ástæður kæranda fyrir uppsögninni hafi verið gildar í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006. Í athugasemdum við ákvæðið í frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar kemur fram að það sé erfiðleikum bundið að takmarka þau tilvik sem geti talist til gildra ástæðna í lögum og reglugerðum þar sem ástæður þess að fólk segi störfum sínum lausum eða missi þau geti verið af margvíslegum toga. Því sé lagt til að lagareglan verði áfram matskennd og Vinnumálastofnun falið að meta atvik og aðstæður hverju sinni. Stofnuninni beri að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir á því hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Jafnframt er bent á að um íþyngjandi ákvörðun sé að ræða. Úrskurðarnefnd velferðarmála telur að ráða megi af framangreindu að almennt beri að gera nokkuð ríkar kröfur til atvinnuleitanda þegar metið er hvort ástæður fyrir uppsögn séu gildar samkvæmt 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006.

Að sögn kæranda voru ástæður starfsloka hennar hjá fyrirtækinu þær að hún varð fyrir kynþáttafordómum og einelti á vinnustaðnum. Auk þess hafi skort verulega upp á faglega stjórnun og leiðtogahæfni yfirmanna. Af hálfu Vinnumálastofnunar hefur komið fram að ekki liggi fyrir upplýsingar um að kærandi hafi leitað allra leiða til lausnar á þeim vanda sem var til staðar. 

Eins og fram hefur komið er ákvörðun um að umsækjandi skuli sæta biðtíma íþyngjandi ákvörðun. Að mati úrskurðarnefndarinnar verður því að gera þær kröfur að fyrirliggjandi gögn bendi eindregið til þess að rétt sé að beita því úrræði. Samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hvílir sú skylda á stjórnvaldi að sjá til þess að eigin frumkvæði að mál sé nægjanlega upplýst áður en ákvörðun er tekin í því. Markmið rannsóknarreglunnar er að tryggja að stjórnvaldsákvarðanir verði bæði löglegar og réttar. Ekki er að sjá af gögnum málsins að Vinnumálastofnun hafi gætt að þeirri skyldu sinni, enda var hvorki óskað sérstaklega eftir frekari upplýsingum frá kæranda né fyrrum vinnuveitanda hennar um þær aðstæður sem hún vísaði til á vinnustaðnum.

Með vísan til þess sem að framan er rakið er það mat úrskurðarnefndarinnar að Vinnumálastofnun hafi ekki upplýst mál kæranda nægjanlega, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga, áður en ákvörðun um að fella niður bótarétt hennar var tekin. Hin kærða ákvörðun er því felld úr gildi og málinu vísað til nýrrar meðferðar Vinnumálastofnunar.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 23. júní 2020, um að fella niður bótarétt A, í tvo mánuði, er felld úr gildi og málinu vísað til nýrrar meðferðar stofnunarinnar.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum